
Bókun
Fimm laugardagar í vinnustofunni á Álafossi. Börnin renna á hjóli, móta í höndunum, gljá sín eigin verk og opna ofninn í lokin.
39.000 kr.
á barn, allt innifalið · Leir, áhöld, svunta, gljáar og báðar brennslur.
Dagskrá
10., 17., 24. og 31. október og 7. nóvember
Laugardagar · kl. 11:00–14:00
Fimm tímar
- 01
Rennsla og handmótun
Kynning á rennslu á hjóli og handmótun.
- 02
Rennsla og handmótun
Haldið áfram að þróa form og tækni.
- 03
Skapandi vinna og undirbúningur hrábrennslu
Abstrakt og skapandi vinna, síðan eru verkin kláruð og undirbúin fyrir hrábrennslu.
- 04
Gljáun
Verkin eru gljáð og undirbúin fyrir lokabrennsluna.
- 05
Ofninn opnaður og frágangur
Við opnum ofninn saman, hreinsum og göngum frá verkunum og fögnum afrakstrinum.
- Aldur
- 6–17 ára
- Lengd
- 5 laugardagar × 3 klst.
- Hópur
- Að hámarki 6 börn
- Foreldrar
- Mega vera með ef þau vilja — eða skutla og sækja kl. 14:00.
- Innifalið
- Leir, áhöld, svunta, gljáar og báðar brennslur
- Staður
- Studio Esja, Álafossvegur 27, 270 Mosfellsbær
39.000 kr. · á barn, allt innifalið
Bóka